Tralla la la la la ¡Qué viva España!
Hitt og þetta...aðallega þetta
05.06.2009 00:06:34 / valla

Svona í tilefni þess að ég á að vera að læra...

...finnst mér tilvalið gera lauslega grein fyrir hvað við Sevilla mín höfum verið að bralla undanfarið. En þar sem ég þarf að spanna ca. 2 mánuði þá förum við bara punktaleiðina að þessu:

·         Þessi prófa- og verkefnatörn er hálfnuð, sem þýðir að ég er búin með 2 áfanga og á 2 eftir. Er nokkuð kát með það þó ég hafi svo sem ekkert hoppað hæð mína eftir prófið í gær. Allavega, þá ákvað ég eftir taugaveiklunarköst síðustu annar að hafa þessa aðeins léttari fyrir mig sem og þá sem þurfa að umgangast mig.

·         En á hinn bóginn...þá er muuun erfiðara núna að halda sig við efnið og loka sig inni á bókasafni þar sem sú gula droppar aldrei við. Sérstaklega þegar hitamælarnir eru farnir að koma með tölur eins og 38.

·         Þá kýs ég næstum því að endurtaka prófalesturinn í febrúar... í dúnúplunni minni með heitt te í æð vitandi það að ef ég lægi við sundlaugarbakka á vindsænginni minni myndi ég hvort sem er lítið annað uppskera en lungnabólgu.

·         MONT 1º: “Við” komumst inn í Meistaradeildina fyrir næsta tímabil með því að enda í 3ª sæti í spænsku!!! Haha…og til að bæta sætu ofan á sætt þá féll Betis niður í 2ª deild.

·         MONT 2º: Var að fá það staðfest að ég náði málfræðikenninga- og setningagreiningaráfanganum ógurlega, “erfiðasta áfanga ferilsins” (svo ég vitni í kennara og aðra nemendur)…Eins og að losna við 15 kg bakpoka eftir að vera búin að bera hann í 8 mánuði!! Þá get ég nú loksins verið spök og einbeitt mér að því að fá andarteppu út af einhverju öðru.

·         MONT 3º: Komst í gegnum síu inn á kennaranámskeið “L2” hjá Instituto Cervantes, sem gefur mér réttindi til þess að starfa sem spænskukennari í málaskólum hér um víðan völl á Spáni :)… Kostar reyndar andvirði nýra (og ég sem er bara með 1stk)…en “JODER” hvað það á eftir að líta vel út á CV-inu mínu!

·         Er í fýlu út í dóttur mína hana Miu sem pissaði fyrir utan herbergisdyrnar mínar! Stelpurnar segja að hún sé að biðja um athygli mína því ég sé aldrei heima…en ég útskýrði fyrir henni á vel valdri íslensku að hún bæri ekki Bergmann-nafnið til að haga sér síðan svona:!: :evil:

·         Er orðin forfallin kaffikerling. Náði þarna að gera sjálfa mig steinhissa þar sem ég þoldi aldrei kaffi...ekki einu sinni ef það var sett of mikið af því í kremið á skúffukökuna. En núna er kaffi allt í einu með því fyrsta sem ég hugsa um þegar ég vakna á morgnana. Þýðir það að ég sé að fullorðnast?

·         Fékk tennisboltakúlu-enni þegar ég steyptist á hausinn á miðri hjólabraut “Sevici”. Reyndar engan veginn (eða allavega að mjööög litlum hluta) mér að kenna því ég var klesst niður af strákbjána sem gleymdi að horfa á sama tíma og ég reyndi að forðast dúfuskammir sem neituðu að færa sig.

·         Tennisbolta-ennið breyttist síðan í þrælfínt pandabjörns-glóðarauga sem ég bar sem skraut á meðan ég hélt 2 fyrirlestra í síðustu viku.

·         Var óþægilega viðstödd rifrildi og sambandsslit um daginn. Væri kannski ekki ýkja mikið í frásögur færandi hefði það ekki verið akkúrat í ræktinni á meðan ég var að teygja... Æjj, elska hvað Spánverjarnir mínir geta verið blóðheitir og dramatískir.

·         Er æsispennt fyrir sumrinu 2009! Þetta verður mikið gengilbeinu-sumar, en í bland við vinnu og strandarferðir ætla ég mér að gerast málvísindamaður mikill, leggja Andalúsíu undir fót og tjékka á hvaða innbyrðis þróun er að eiga sér stað í þessari fallegu fallegu mállýsku sem andalúsískan er.

·         Eini mínusinn sem ég sé við þetta allt saman er að ég sé ykkur elsku Kreppulandsfólkið mitt ekki fyrr en um það leyti sem við skreytum öll jólatréð :$

Elsku Liljan mín, þetta var að miklu leyti fyrir þig :*
Bueno, bueno…nú bíður mín Biblíu-þykk mállýskufræðibók fyrir háttinn.
Hafið það “genial”,
¿Læru?-Bergmann


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.04.2009 23:49:46 / valla

Snarklikkuð Semana Santa

Þá er páskavikan búin hérna í Sevillunni minni (enginn annar í páskum hér) og ég eiginlega bara fegin svei mér þá því ég vann alla 8 dagana á tapas-börunum Levíes og Cachito við aðstæður sem hljóta að flokkast undir einhvers skonar geðbilun. Páskavikan í Sevilla er nefnilega fyrir þá sem ekki vita ein af stærstu hátíðum Spánar og önnur af þeim stærstu í Sevilla. Og þetta ógrynni af túristum og Sevillabúum þurfti að sjálfsögðu að næra sig inn á milli þess sem það horfði á “las procesiones” (helgigöngurnar) teppa götur Sevilla. Eitt kvöldið var sérstaklega spinnegal þar sem ein gangan kláraðist í kirkju rétt við hliðina á Levíes 2 um nóttina, eldhúsið opið til hálf 4 og við loksins laus rétt fyrir 5 með harðsperrur í munninum eftir 9 klst af frosnu brosi og búin að telja upp á ca. 10.000 ef við leggjum saman hversu oft við þurftum að kalla eftir innri friði meðan við hlustuðum á óþolinmótt fólk á biðlista eftir borði. Svo var náttúrulega við því að búast að fólk skipti frá vatni yfir í vín í anda hátíðarinnar og sumir meira en aðrir. Ein stelpuskjáta gerði okkur lífið ansi leitt einn daginn þar sem henni tókst að æla akkúrat í gangveginn þar sem við tökum á móti matnum frá eldhúsinu og eftir að það var þrifið upp svo við myndum ekki enda í gólfinu með tapasrétti fljúgandi út um allt þá ákvað señoritan að létta á sér aftur… á sama stað! Seinna sáum við svo samskonar glaðning inná klósetti… ég gruna stelpuskrattann þó það sé líffræðilega stórmerkilegt að hún hafi átt eitthvað eftir.

En la Semana Santa er í raun alveg stórmögnuð að sjá og upplifa og líkneskin af Kristi og Maríu mey sem eru borin út um allt svo vönduð og falleg. Í þessum göngum sem taka u.þ.b. 8-12 klst. taka kannski 500-2000 manns þátt allt eftir því hversu stór "cofradía" (bræðralag) er um að ræða. Það eru um 130 cofradías í Sevilla og við það bætast áhorfendur svo það gefur auga leið að litlu mjóu göturnar í miðbænum verða gjörsamlega ófærar á meðan. Hverri cofradíu er úthlutaður ákveðinn dagur og tími og svo heldur hún út frá sinni kirkju, labbar niður í miðbæ að dómkirkjunni og svo aftur til baka. Í hverri göngu er lúðrasveit, kyndlaberar, krossberar (sumir röltandi um berfættir) og "costaleros" (gaurarnir sem eru faldir undir líkneskjunum og bera þau). Undir stærstu líkneskjunum eru allt að 150 costaleros. Svo þurfa þessar göngur oft að stoppa því að ein og önnur virðuleg señora brestur grátandi í söng af svölunum sínum hér og þar. En það merkilegasta af öllu finnst mér samt sú staðreynd að fólk eltir uppi hverja gönguna á eftir annarri (gengur um með svona Semana Santa dagskrá), fellur í stafi þegar María er látin vagga eða Kristur látinn "falla" 3svar og virðist ekkert vera að pæla neitt sérstaklega í því að í öllum göngunum er gert það sama. Þá er líka eiiiins gott fyrir íslenska gengilbeinu að vera ekki að slóra neitt svo að fína dagskráin fari ekki öll í klessu og fólk missi af því þegar Jesús kemur út úr kirkjunni.

Semana Santa í Sevilla er sem sagt stærsta trúarlega hátíðin á Spáni og svo byrjar Feria de Abril eftir 2 vikur sem er svona vikulöng flamenco-“þjóðhátíð”. Það þýðir skóli í 2 vikur og svo aftur vikufrí-vinnuvika. En þó ég verði að vinna þá verða það engin leiðindi svosem því það virðist ekki skipta máli þó fólk sé dauðuppgefið eftir vinnu, alltaf skal vera eftir orka í nokkra bjóra…og jafnvel eitt dansspor eða 2 ;) Einmitt ástæðan fyrir því að ég er með sólarhringinn á hvolfi, að ég hef bara hitt Noe á morgnana þegar hún er á leiðinni í sína vinnu, að litla 4fætta spangólandi dóttir mín Mia Bergmann Sánchez Pizjuán er orðin taugatrekkt á að heyra alltaf í útihurðinni án þess að mega fara út og að ég get ómögulega sofnað núna.

http://photos-g.ll.facebook.com/photos-ll-snc1/v2744/45/10/730151065/n730151065_2844422_3327870.jpg
Mia Bergmann Sánchez Pizjuán

Jæja mín kæru, við Mia segjum buenas noches :*
Miu-Bergmann


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.03.2009 14:03:39 / valla

Lífið á Stóratorgi

Já ég veit, ég er með slakara fólki í þessu… en það þýðir svo sem ekkert að það sé einhver lægð yfir lífinu hér. ¡En absoluto! Hér er nánast komið sumar og sólbaðs-ég fer nú ekki að kvarta yfir því. Hoppaði líka hæð mína (þó hún sé reyndar ekki mikil) af gleði þegar ég fann krana upp á þaksvölum fyrir barnasundlaugina mína og var ekki lengi að redda slöngu á hann. Veðrið er reyndar aðeins að klikka í dag… er búin að vera hérna í skólanum frá 9 í morgun og er svei mér þá enn að þorna eftir hjólaferðina. En nýja fína íbúðin okkar býður nú upp á marga fleiri góða hluti auk þaksvalakranans… eins og risavaxna fataskápinn minn heittelskaða, gestarúm (ooog 2 sófa) og meðleigjendur sem eru svo góðar við mig að það er stundum hreinlega ekki sanngjarnt.

Það þýðir lítið annað en að stikla á þessu í punktum…

·         Búin að vera afmælisvertíð hér. Ríkey var grand á því og hélt grillveislu. Sevilla fagnaði með henni með því að bjóða upp á bakandi sól og 31 gráðu:
http://images44.fotki.com/v1470/photos/6/845056/7364047/020-vi.jpg

·         Fran varð 30+:
http://images44.fotki.com/v1467/photos/6/845056/7364047/049-vi.jpg

·         og ég 23:
http://images46.fotki.com/v1483/photos/6/845056/7364047/004-vi.jpg

Ég sá um kökuna handa Fran og yngdi hann alveg óvart um 3 ár. Hann var svo sætur að gera það sama fyrir mig.

·         Svo fékk ég tryllta afmælisgjöf. Var að hjóla heim úr ræktinni og lenti inn í mannþvögu sem var að bíða eftir að leikmenn Sevilla FC færu út í rútu eftir prepp-fund fyrir leikinn á lau. Svo stóð ég þarna klökk eins og kjáni meðan Jiménez og hans menn með elsku Navas í fararbroddi löbbuðu fram hjá mér…úúúfff! Eftir þetta verður myndavélin alltaf með!!!

·         Cris og Noe áttu líka afmæli í gær… búnar að vera saman í 2 ár stelpuskottin.

·         Í tilefni af því var sú ákvörðun tekin að bæta við litlum sætum loðnum íbúa sem við sækjum seinna í dag. :haha:

·         Loksins komin með vinnu aftur. Helgarfríin eftir prófin voru nauðsyn en núna er ekki í boði lengur að helga sig sangríunni því þessar evrur eiga það til að gufa upp. Hef verið flutt af Duplex yfir á Levíes sem er annar tapas-bar með sömu eigendur. Vantar sjálfsagt að rífa svolítið upp viðskiptin þar ;) Hið fínasta mál því Fran karlinn vinnur þarna við hliðina.

·         Reyndar smá vesen að ég skuli byrja akkúrat núna á föst því þá er Vorhátíðin með tilheyrandi “Macrobotellón” (eða Risaflöskurýi) Svona leit þetta út þegar ég var hérna 2007:

 http://images21.fotki.com/v840/photos/8/845056/4752638/Imagen003-vi.jpg
http://images21.fotki.com/v845/photos/8/845056/4752638/Imagen006-vi.jpg

·         Í apríl verð ég sennilega birtur rithöfundur því ritgerðin mín um “Röksemdaleiðslu o hlutdrægni í leiklýsingum á heimsíðu Sevilla FC” er víst á leiðinni í spænskt málvísindatímarit. Held síðan að Almodóvar ætli að nota þetta í handrit að næstu mynd.

·         Svo mæli ég bara með því að athuga með flug 28. apr – 3. maí því þá er “Feria de Abril” sem er (með Páskahelgigöngunum) sú hátíð sem Sevilla er frægust fyrir… svona eins og vikulöng Þjóðhátíð í Eyjum… ef við skiptum út regngöllunum fyrir flamencokjóla.

·         En núna er að koma sér að verki því ég þarf að undirbúa kennslustund. Líður eiginlega bara kjánalega því ég á víst að útskýra fyrir samnemendum mínum (sem eru allir innfæddir á lokaári) hvernig viðurkenningarsetningar virka á móðurmáli þeirra… ahahaha...æjjj.

Fyrir þá sem langa að birtast óvænt í heimsókn, jah eða finna hjá sér óstjórnlega löngun til að senda mér eitthvað sætt frá ættjörðinni góðu eins og t.d. Völlu-nammi *hint mamma hint* þá bendi ég á nýja fína adressu:

Gran Plaza nº 2, 4º C
41005 Sevilla
ESPAÑA

Segjum það mín kæru,
Hvolpa-Bergmann


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2009 11:32:41 / valla

Látum okkur nú aldeilis sjá...

Ég sem sagt lifði af eingangrunarbúðirnar sem voru prófin og ritgerðirnar mínar og var látin laus fyrir rúmri viku. Þessa rúma mánuðar verður minnst sem "taugaveiklunar-tímabilið" ...ekki bara fyrir mig heldur líka fyrir saklausu fórnarlömbin í kringum mig og heima á Fróni... eeen á einhvern lygilegan hátt var allt staðið og allar einingar komnar í hús. ;) Síðan þá hef ég verið í endurhæfingu í mannlegum samskiptum og kynnst því á nýjan leik hvað lífið hérna er yndislegt. Ekkert að reyna að svekkja fólk en mbl segir mér frá -3 gráðum á Egs. Hérna eru þær farnar að stíga uppí ca. 25 sem er alls ekki slakt svona í enda febrúar...og ef maður finnur sér góðan stað fyrir utan skólann þá er maður ekkert lengi að sækja sér hið fínasta tan.

Eeeen það er víst ekki í boði að helga sig brúnkun því í dag er hinn stóri flutningadagur. Ég og 2 vinkonur mínar skrifuðum undir leigusamning á miðv fyrir íbúð hérna rétt hjá leikvangi Sevilla FC...ooog ekki skemmir það fyrir að það er rækt með útisundlaug nánast við hliðina, ekkert leiðinlegt fyrir sumarið. :d Samningurinn er uppá ár en þar sem við skrifuðum undir allar 3 þá er ég svosem ekkert "föst" hérna ef mig langar allt í einu heim eftir sumarið (sem ég býst nú ekkert æðislega við).

Af hverju er ég að flytja úr íbúð sem er á besta stað og ég var svo heilluð af? Húhh...hvar á ég að byrja? Ég held að allt hafi hafist þegar hún Liliana blessunin ákvað að fæðast. Þetta skaðræðiskvendi er búið að vera að svíkja út úr okkur pening síðan við fluttum hingað inn. Alveg lyginni líkast hvað hún reynir og lætur sig svo hverfa þegar eigandinn kemur að heimta inn leiguna. Þessi nótt var því síðasta nóttin mín í íbúð sem hefði verið fullkomin hefði hún verið "Liliönu-laus". En þó nýja íbúðin sé soldið lengra í burtu frá skólanum og vinnunni (þ.e.a.s. ef ég er enn með vinnu...þyrfti kannski að fara að tékka á því) þá býður hún upp á risavaxinn fataskáp fyrir mig eina og þaksvalir fyrir mig og barnasundlaugina mína (svona þegar hin er lokuð) þannig að ég ætla ekkert að kvarta.

Við ætluðum reyndar að ganga frá flutningum í gær en þá lentu Noe og Cris (meðleigjendurnir mínir) í árekstri og bíllinn kominn á verkstæði. Sem betur fer er allt í lagi með stelpurnar, en Noe var aum í hálsinum og lét kíkja á hann. Þar sem læknaþjónustan hér er ekki sú hraðasta (maður tekur númer og bíður eins og í bönkunum (bankanum?) heima) þá varð ekkert úr því að fá flutningabíl í gær. Sem sagt... ég er þessa stundina frjáls flytjandi manneskja og gæti bara ekki verið sáttari.

Set inn myndir af nýju höllinni þegar við erum búnar að sjæna hana til. Og mamma... fáðu nú Dóru vinkonu þína til að hjálpa þér með Facebook!

Knús og besos í bili,
Flytju-Bergmann


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.01.2009 12:25:13 / valla

Hálfnað verk... þá hálfnað er

Það er eins og Sevilla mín fagni pínu með mér í hvert sinn sem ég losa mig við próf. Hún tók heillandi á móti mér þegar ég kom út úr skólanum, svona eins og þegar við hittumst fyrst, sólrík og fín, og ég fann að ég elska hana enn...
Það er nefnilega búið að vera svolítið kalt á milli okkar undanfarið og þá á ég við bókstaflega. Það er búið að vera drullukalt hreinlega og þó hitamælirinn segi 6 eða 8 gráður á kvöldin þá erum við ekki að tala um samsvarandi gráðuskilning og heima. Ó, nei! Og sérstaklega ekki þegar innanhússmælirinn sýnir svipaðar tölur. Fyrir þá sem ekki vita þá eru húsin hérna yfirleitt illa búin undir vetrarkuldann því fólk sem hefur ekki efni á bæði kyndingu og loftkælingu kýs að sjálfsögðu loftkælinguna. Ef ekki, myndi það fólk sjálfsagt ekki lifa sumarið til að nota kyndinguna sína næsta vetur.

Allavega, í dag er enn eitt prófið að baki og með fyrstu dögunum eftir jól sem ég sit ekki við tölvuna í dúnúlpunni minni að sötra heitt te og blása lífi í fingurna.
Hálfnuð með þessi óblessuðu próf, eeeen... þar sem einn kennarinn minn fékk þá mannvonskuhugmynd í síðasta tíma að bæta við verkefni, þá lítur nýja tölfræðin svona út:

Próf: 3 af 6
Ritgerðir: 0 af 2
Verkefni: 1 af 2
Stressköst: Ca. 6 - þar af 1 örvæntingarkast og 1 Red-Bull-yfirgírun

Þar sem ég er svo mikið fyrir tölfræði ákvað ég að spyrja mállýskufræðikennarann minn eftir prófið á mán hversu líklegt honum þætti að ég hafi náð. Hann kaus að svara því með því að slá á puttana mína og segja mér að vera ekki svona óþolinmóð. Hvað les maður úr svona svari?

Bueno, núna eru batteríin mín búin í bili. Smávegis power-lúll og svo aftur í bækurnar. Þetta reddast.

Bjartsýnis-Bergmann

» 19 hafa sagt sína skoðun

12.01.2009 17:34:26 / valla

Ææjjj

Muniði þegar maður var bara lítill krakki að leika sér uppí Botnatjörn? Engin próf, engar ritgerðir, engin magasár...
Jæja, eitt próf búið. Einhvers staðar verður maður víst að byrja.
Svona er tölfræðin:
Próf: 1 af 6
Ritgerðir: 0 af 2
Stressköst: 2 (bara væg samt) af hugsanlega 35 (ef við miðum við eitt gott á dag)

Guð blessi okkur öll,
Prófa-Bergmann


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 15:44:50 / valla

Sevilla - Villareal

Úúúfff... ef það væri í raun hægt að springa úr gleði þá væri ég án efa sprungin núna!! Það eina sem er kannski að skemma pínu gleðina í dag er hjólið mitt því núna hjóla ég bremsulaus um borgina skransandi með skónum, stórhættuleg fyrir mig og aðra. En samt svo sátt við lífið...
·         Rétt 6 dagar í heimför og eftir litla 8 verð ég komin heim á elsku besta Seyðis.
·         Ástin blómstrar jafnt og þétt á milli mín og Sevilla (þrátt fyrir smá ósætti um daginn í úrhellisrigningunni og kuldakastinu).
·         Stelpuskottin sem ég bý með eru hreint út sagt yndislegar. Mikið mikið hlegið (hmm..oft samt á minn kostnað, en jæja..allavega hlegið).
·         Eftir rúmar 2 klst verð ég stödd á Estadio Ramón Sánchez Pizjuán að horfa á Sevilla taka Villareal í kennslustund.

Jihh hvað ég er spennt! Skyldi ég hitta Jesús Navas?
http://lobis.blogspot.es/img/fotojesusnavas.jpg
Fyrir 3 árum hefði ég nú skellihelgið ef einhver hefði sagt mér að ég ætti eftir að tapa mér af spenningi út af fótboltaleik, en svona getur lífið verið skemmtilega skondið. Núna er ég búin að kaupa mér miða á leikinn í staðinn fyrir jólakjólinn í ár og lýsi því yfir með stolti að ég er "sevillisti til dauðadags" ;)
¡Sevillista hasta la muerte!
Fótbolta-Bergmann

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2008 15:07:54 / valla

Það koma vonandi jól

Orðið á götunni er að litla ráðstefnan okkar um Ísland hafi heppnast vel og ég bara verð að vera sammála því. Konsúllinn sá sér reyndar ekki fært að mæta, en ég fyrirgef honum það. Það var nú ekki troðið út að dyrum en það mættu ca. 40 manns og sumir héldu þetta út allan tímann eða 3 ½ klst. Samt hissa á því að þessi fína auglýsing hafi ekki dregið fleiri að:
http://images44.fotki.com/v1420/photos/8/845056/6972593/006-vi.jpg

Hérna eru Anna Sigga og Ríkey að störfum við ráðstefnuundirbúning:
http://images48.fotki.com/v1407/photos/8/845056/6972593/017-vi.jpg

Svo kom Carmencitan mín (sem ég kynntist hérna í Erasmus-náminu fyrir 2 árum) í heimsókn í nokkra daga. Og þá var að sjálfsögðu farið beinustu leið á barinn hans Fran:
http://images42.fotki.com/v1372/photos/8/845056/6972593/016-vi.jpg
Stelpuskottið fékk svo 3 mánaða starfsnámsstyrk hérna og kemur aftur í jan :d

Annars höfum við sambýlingarnir það agalega gott hérna í Fernando Tirado (eða Fernando 'ódýra / subbulega'), allavega á virkum dögum á meðan Liliana sinnir geðvondu gömlu konunni sem leyfir henni hvorki að kveikja á sjónvarpi né útvarpi og enn síður að nota heitt vatn. Ég var næstum farin að finna til með henni... en þetta fær hún fyrir að ræna starfinu af Celeste. Celeste er aftur á móti flutt út og farin til Madrid því fyrir henni getur Liliana "bara farið eitthvert og steikt aspars" eins Spánverjar eiga til að segja til að nota ekki önnur grófari orð.
Hérna erum við sambýlingarnir í náttfata-jólagír við litla sæta tréð okkar; Coral, ég, Noelia og Cristina:
http://images47.fotki.com/v1400/photos/8/845056/6972593/013-vi.jpg

Svo bjó ég líka til þennan fína aðventukrans:
http://images42.fotki.com/v1363/photos/8/845056/6972593/003-vi.jpg
Ætlaði að kaupa tilbúinn en Kínverjarnir í Kína-búðinni hérna við hliðina höfðu ekki hugmynd um hvað ég var að tala svo ég lét reyna á sköpunarhæfileikana. Réttu mér líka afmæliskerti þegar ég bað um jóladagatalskerti. Hérna eru jötulíkneskin nefnilega aðalmálið í aðventuskrautum og svo skreytir fólk líka jólatréð í byrjun mánaðarins.

En obb obb... núna má ég aldeilis fara að sjá hressilega eftir áfangavalinu mínu því hér er allt að verða snar. Já, já... ég sé alveg fyrir mér nokkur augu sem þetta lesa ranghvolfast, en ég held það sé ekki þetta týpíska Völlu-stress sem ólgar í mér. Mér líður eiginlega bara kjánalega, hlusta á kennarann og gapi í allavega 3 af þessum 6 áföngum mínum. Ef ég væri ekki svona nísk væri ég líka löngu hætt í vinnunni til að hafa almennilegan tíma til að tækla þetta allt saman. Meiri leiðindin líka að prófin mín eru frá 19. jan til 6. feb... en ætla heldur betur fyrir því að eiga mér gleðileg jól heima á elsku Seyðis. Þangað verð ég einmitt komin eftir 17 daga. :)

Vil rétt í lokin gefa krónunni gott klapp fyrir fínar framfarir á síðustu dögum. Vel gert þar sem ég þarf að borga leiguna á morgun.
Eigið góða helgi (hjá okkur er hún mánudagurinn líka, liggalá) mis queridos :*

Tilhlökku-Bergmann

ÞAÐ KOMA VONANDI JÓL

Allflestar útgönguspár
eru á eina lund;
þetta var skelfilegt ár.
Hér út við heimskautsins baug
hnípin þjóð – þráðbeint á höfuðið flaug.

Allt þetta útrásarpakk
át á sig gat
svo loftbólan sprakk.
Nú eru lífskjörin skert, mannorðið svert,
Hvað hafið þið gert?

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við skellum könnu upp á stól
og Sollu í kjól.
Þrátt fyrir allt
þrátt fyrir verðbólguskot
– þjóðargjaldþrot.

Við áttum íbúð og bens
og orlofshús.
Allt meikaði sens.
Góðgerðir gáfum og blóð
greiddum í – dulítinn séreignasjóð.

En nú er allt þetta breytt og eftir er
nákvæmlega ekki neitt.
Já nú er útlitið dökkt
ljósið er slökkt
og við erum fökkt.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Þó vanti möndlu í graut
og amerískt skraut.
Þrátt fyrir allt
þrátt fyrir háðung og smán
– myntkörfulán.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við étum á okkur gat
af innlendan mat.
Og þrátt fyrir allt
misnotum sykur og salt.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við krössum afmælið hans
– heimslausnarans.
Því að þrátt fyrir allt
drekkum við mysu í malt
http://baggalutur.is/jol/2008.php


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 15:08:18 / valla

"Here's your sign"

Ef að þetta kemur mönnum ekki í gott skap fyrir helgina þá gerir það sjálfsagt fátt:

http://www.youtube.com/watch?v=famhW3PkFfA

Ahahahaha....æjjj.

Mikil læri-/vinnuhelgi framundan. Við Íslendingarnir 3 í Háskóla Sevilla eigum að stjórna ráðstefnu um Ísland frá 16-19 á þriðjudaginn. Hélt fyrst að þetta yrði bara eitthvað lítið 1 klst bekkjardæmi og var svosem ekkert að missa svefn yfir þessu...jah, eða þangað til ég fór að sjá auglýsingar út um allan skóla og frétti að það ætti að bjóða konsúlnum. :$

Minn hluti er íslensk málfræði og hljóðfræði, íslensk mannanöfn, hjátrú og goðafræði. Þigg allar sniðugar uppástungur með miklum þökkum.

Hasta pronto mis queridos,
Ráðstefnu-Bergmann


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 01:10:36 / valla

Ding dong... the psycho‘s gone

Jæja nú aldeilis jæja, það heeeld ég nú að það sé kominn tími á uppfærslu um Sevillalífið mitt! Ég væri nú ljóti lygarinn ef ég segði að hér sé allt búið að vera með kyrrum kjörum síðan ég gaf skýrslu hérna í gamladaga fyrir meira en mánuði síðan.

Það er kannski best að byrja þar sem ég endaði síðast...  Ég bjó til þessa líka fínu auglýsingu til að leita að fleiri meðleigjendum og hengdi út um allan skóla svo Liliana myndi lækka leiguna fyrir okkur Coral eins og hún var jú búin að lofa:

 http://images43.fotki.com/v1383/photos/8/845056/6907586/006-vi.jpg
Sannfæringarkraftur auglýsingarinnar var slíkur að nokkrum klst seinna var málunum reddað og nú býr parið Cristina og Noelia (jebb, við erum að tala um 2 stelpur) hérna í herberginu við hliðina á mínu. Ég er mjög sátt við þær. Cristina er með mér í tímum í einu fagi og Noelia er að fara að taka þátt í einhverri stand-up-comedian-keppni held ég bráðum, enda með þann sérstæða hæfileika að geta búið til brandara úr öllu.

Það er hins vegar brandari út af fyrir sig hversu mikið mér skjátlaðist um hana Liliönu. Ég ætla nú ekki að fara að eyða tíma ykkar né mínum í það að fara út í smáatriði en nú er gríman sko aldeilis fallin og „hanskarnir komnir af“, eins og maður segir á ekki svo góðri íslensku.

Lítum samt á örfá dæmi...
    Daman kannaðist ekkert við að hafa lofað lækkun á leigu þegar kom að mánaðamótum.
    Hún ætlaði að henda okkur öllum út fyrir nokkrum dögum, áttum að fá 8 daga til að finna nýja íbúð og flytja. Það var víst vegna þess að íbúðin er orðin of dýr fyrir hana eftir að kærastinn (sem er bæ ðe vei giftur tvítugri stelpu í Marokkó) sagðist vera hættur að halda henni uppi. (Og nei, ég stal þessu ekki úr sápuóperu)
    Coral fann leigusamninginn fyrir tilviljun um daginn og þá kom í ljós að hún er búin að vera að ljúga að okkur allan tímann um góðar 300 evrur hvað leigan á íbúðinni er há!!! Við erum því beisiklí búnar að vera að borga ofan í hana matinn og ýmislegt annað drasl sem henni dettur í hug að kaupa :evil:
    Núna í kvöld frétti ég það svo að hún stakk hana „perluvinkonu“ sína og samlanda Celeste á bólakaf í bakið og tók af henni ráðskonuvinnu sem hún var nánast búin að negla með því að sýna fram á að hún "byggi yfir meiri reynslu"... jahh, hvað segir maður við svona kvendum?
    En nú verður samt bráðum kátt í höllinni aftur þar sem við verðum bara 4 á meðan Lili ráðkonast (ráðskast?) í þorpi hérna rétt hjá og Celeste fer með ansi sárt enni og stungið bak eitthvert annað.
    Þess má svo til gamans geta að Coral talaði við nágrannana um daginn og þeir héldu að ég væri hóra líka eins og aðrar stelpur sem hafa verið hér!!! :^)

Ætla að punkta snöggvast annað fréttnæmt síðan síðast:

·         Stefa mín kom í heimsókn (samt allt allt of stutta). Ég kynnti hana fyrir Fran og genginu en svo þegar ég ætlaði að sýna henni almennilega næturlífið þá kom smávægilegt babb í bátinn... Hafði víst náð að særa einn dyravörð með því að mæta með eigið áfengi nokkrum helgum áður og af þeim sökum meinaði hann okkur aðgangi :$
Við Stefa að borða a Duplex:http://images43.fotki.com/v1388/photos/8/845056/6907586/004-vi.jpg

·         Mamma og Hulda systir komu á fimmt og fóru aftur í dag (enn á ný of stutt heimsókn). Er ekki frá því að ég hafi fengið vott af heimþrá þegar rútan þeirra lagði af stað. Get samt alveg fullyrt að það var fólksöknuður en ekki landsöknuður.
Hérna erum við með 2 aðalkennimerki Sevilla í baksýn, Torre del Oro (Gullturninn) og Girölduna:
http://images43.fotki.com/v1390/photos/8/845056/6938225/022-vi.jpg

·         Komin með jólaflug heim... kem 20. des um kvöldið eftir smá stopp hjá Freysa í London. Langar ekki einhvern agalega að taka á móti mér á Leifsstöð?

·         Farin að sjá verulega eftir bjartsýnis-áfangavalinu mínu 8|

·         Það merkilegasta af öllu var samt að að ég fann sangríu sem er betri en Don Simón!!

Buueeeenno, ekki úr vegi að lesa það sem lesa þarf fyrir morgundaginn...sem er víst alveg slatti.
S
endi ykkur á Kreppulandi „muchos besos y abrazos“,
Sápu-Bergmann


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 22:28:11 / valla

Radio Valla

Ahhh yndislegi yndislegi frídagur!!! Engin vinna, enginn skóli og bara farið úr náttfötunum til að sturta sig…oooog mikið svakalega er gott að sofa! Held svei mér þá að ég fari að gera meira af því í nánustu framtíð. Ef það væri ekki fyrir þessa snilldar uppfinningu þá væri ég líklegast löngu orðin batterýslaus:
http://images40.fotki.com/v1263/photos/8/845056/6595899/007-vi.jpg

En núna lítur út fyrir að “bossarnir” mínir séu loksins farnir að taka mark á mér og ætli að “leyfa mér” að vinna bara fös-lau-sun. Núna er nefnilega alvaran tekin við sjáiði til og námsmannalífið hafið. Veit ekki hvort ég eigi að bera fyrir mig svefnleysi… en í einhverju stundarbrjálæði sem greip mig akkúrat þegar ég gekk frá áfangavalinu fylltist ég slíkri ofurtrú á sjálfri mér að ég skráði mig í 5 5ª árs áfanga og 1 3ª. Sem sagt 6 en total og einn á víst að vera “hættulegur” fyrir innfædda og bæði kennarar og starfsfólk vöruðu mig við honum. Haha…mjah, sjáum hvernig þau mál fara. Eftir fyrstu vikurnar eru ég og Wikipedia allavega orðnar ansi nánar. ;)

Jihh...of mikið að segja. Hvar á ég að byrja? Held ég verði að taka punkta á þetta:
·         Bý ennþá í prinsessuíbúðinni með lazyboy-sófanum og risaskjánum… núna er hún hórufrí og fín.
·         Breyttist reyndar í hálfgert farfuglaheimili um daginn… á tímabili var fólk sofandi hér á stofugólfinu.
·         En akkúrat núna erum við 4: ég, Lili frá Paraguay, Celeste frá Paraguay og snilldarinnar Coral frá Málaga. Erum síðan að leita að 1-2 í viðbót því leigan er ekki ókeypis…ó sei sei nei.
·         Við Coral ætluðum á tímabili að flytja annað, en eftir að maður venst lúxus þá er erfitt að snúa til baka. Lili samþykkti líka að lækka aðeins leiguna fyrir okkur 2 ef við finnum fleira fólk.
·         Lili er líka algjört yndi…alltaf í góðu skapi, klippir og litar á mér hárið, lagar fötin mín, þrífur allavega 1 sinni á dag, eldar og setur upp skeifu ef ég segist ekki vera svöng. ;)
·         Eins og Glóan mín segir, þá er ég skemmtilega nísk á ansi skrýtna hluti. Ég til dæmis þooooli ekki að borga leigubíla og er þess vegna sáttari en allt með nýja fína hjólið mitt sem ég nota útum alla borg… til að fara í skólann, vinnuna, ræktina, etc. Þess vegna sá ég líka rautt á fös þegar ég ætlaði að þjóta af stað í vinnuna… þá var búið að stela hnakknum! :frown: Var svosem undir það búin og hafði því geymt hnakkinn af gamla hjólinu. Skellti honum á og hélt að vandamálið væri úr sögunni…ekki aldeilis. Afturhjólið var laust!!! Núna vil ég vísa í myndina í síðustu færslu… einhverjir “hijos de mierda” (þýðum það ‘skítbuxar’) höfðu reynt að endurtaka leikinn. :evil: :evil: Kom í ljós daginn eftir að Lili öskraði á 3 strákaræfla sem voru að gramsa í hjólinu mínu og þess vegna tókst þeim ekki að klára verkið… Elsku Lili. En málin enduðu þannig að ég þurfti að taka leigubíl í vinnuna og borga það sama og ég vinn mér inn á 2 tímum!!! Leigubíll aftur heim um nóttina og… ¡¡me cago en la…!! … á föstudaginn kom ég út á núlli! Vann fyrir taxa:!:
·         Morguninn eftir þurfti ég svo að redda hjólamálunum. Heimsótti nýju vini mína, englana á bílaverkstæðinu hérna í næstu götu. Þetta er í 4ª sinn sem þeir hjálpa mér með vesen út af hjólinu og aldrei vilja þeir fá neitt fyrir… “Þetta er bílaverkstæði, ekki hjólaverstæði. Erum ekki með taxta fyrir hjólaviðgerðir.” Skiptir ekki máli þótt þeir séu að sinna mér hátt í klst eins og á lau. Þess vegna fer ég líka á morgun í heimsókn til þeirra með heimabakaðar muffins og Cruzcampo (sevillabjórinn). :)
·         En hérnaaaa… nú auglýsi ég eftir commentum… Tala ég rosalega mikið? :$ Eða er þetta ef til vill nýr fítus sem ég hef þróað með mér hérna?... Nýjasta viðurnefnið mitt í vinnunni er nefnilega “Radio Valla”… sem við þurfum þá að bæta ofan á “La esponja humana” (‘mennski svampurinn’).
·         En annars eru yfirmennirnir mínir nú meiri ræflarnir… “unos cabrones” eins og maður segir á góðri spænsku. Næstum uppá dag kemur ný regla um eitthvað sem við megum ekki gera eða verðum að gera. Við megum t.d. ekki borða neitt sem heitir kjöt, fiskur, eða er með osti og engan aspars… því þessir hlutir eru víst of dýrir. Svo megum við ekki lengur fara á barinn hans Fran eftir vinnu. (Þar hittumst við alltaf áður, fólkið sem vinnur á veitingastöðunum og börunum í nágrenninu.) Nágrannarnir kvörtuðu víst og við fengum þann úrslitakost að “annað hvort vinna á Duplex eða fara á Aula Magna”… jebb, þeir eiga okkur víst eftir vinnudaginn líka:!:
·         Í öllu þessu blessaða kreppustandi fann ég samt einn jákvæðan punkt… skyndilega eru launin mín ekkert svo agalega slæm. ;)
·         Hey, muniði eftir teiknimyndinni um moldvörpumanninn? Þannig er kennarinn minn sem kennir mér nútímasögu Andalúsíu...skondinn lítill karl.
·         Rifbeinsbrotin/-brákuð… í 4ª eða 5ª sinn. Alltaf jafn hressandi.
·         Skemmtilegir tímar framundan… Stefa mín kemur í næstu viku, Freysi að kanna með flug frá London og mamma og Hulda systir koma í nóv. :d :d

Þetta var skrýtið punktablogg…ekki svo mikið punktar, meira svona mini-ritgerðir. En jæja… svona er lífið í Sevilla í dag ;)

Knús í bili og hasta pronto,
Útvarps-Bergmann


» 14 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 02:35:18 / valla

Úúúffff!!!

http://images40.fotki.com/v1303/photos/8/845056/6649994/002-vi.jpg

Jájá, auðvitað hlaut þetta að gerast á endanum:!:

Líf mitt síðustu 2 vikurnar er búið að vera eins og hin súrrealískasta Tarantino-mynd... mínus allar blóðsúthellingar reyndar.
2 vikur sem sagt síðan ég flutti hingað í prinsessuhöll og sáttari manneskju var ekki hægt að finna þegar allar töskur voru afpakkaðar og nýja fína rúmið vígt...
3 dögum seinna fór glansinn samt píííínu af öllu saman... atburðarásin var það hröð að ég afrekaði lítið annað en að gapa gjörsamlega kjaftstopp!!
...Hingað mætti stúlka og nokkrum mínútum seinna dinglaði maður. Ég ætlaði að opna fyrir honum er var þá skipað að fela mig! Það kom svo fljótlega í ljós að þessi ágæta stúlka selur sig og þjónustu sína á nýja heimili mínu...jább!! hér er nefnilega stundað vændi fyrir vænar 150 evrur hálftímann!! 8| Pútan sú leigir nefnilega herbergi hér milli 10-21 og mætir hér með viðskiptavini sína...
...eeeen sagan er ekki búin því hún borgar fyrirtæki hérna rétt hjá fyrir pappíra sem segja að hún vinni þar svo hún geti sýnt kærasta sínum. Borgar líka einkaritara fyrirtækisins fyrir að bulla einhvern fjandann um að hún sé upptekin þegar strákgreyið reynir að hringja... sama strákgrey og keyrir henni í "vinnuna" á hverjum degi á mótórhjólinu sínu!!!

Eins og gefur að skilja var ég ekkert hoppandi kát yfir því að þurfa að fela mig í tíma og ótíma og halda fyrir eyrun þess á milli... man nú ekki nákvæmlega hvað það var en eitthvað sagði ég víst sem móðgaði hina virðulegu pútu... sem kom sér bara nokkuð vel (allavega fyrir mig) því nokkrum dögum seinna dók hún dótið sitt og strunsaði burt til að selja sig einhvers staðar annars staðar.

Oooog þá var kátt í höllinni...mjaaaa...nema það að við erum enn lyklalausar þannig að  það þarf alltaf einhver að vera heima og ég neyðist alltaf til ræsa liðið þegar ég kem heim á næturnar eftir gengilbeinutörn. Vonum að það kippist í lag á næstu dögum.

Annars...Fyrir þá sem langar að senda mér óvænta glaðninga eða slúdda að heiman á gamla mátann:
C/Fernando Tirado 20, 3B

41018 Sevilla

ESPAÑA

Gengilbeinufrídagur á morgun sem verður víst notaður í hjólaleit þar sem nýtt hjól undir hljólið mitt kostar meira en nýtt hjól... hmm af hverju erum við ekki með meiri orðaforða í hjólamálum eins og spænskan?

Besos,
Hjóllausa-Bergmann

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 13:52:31 / valla

Sevilla = maravilla

Jáhh, ást mín á þessari borg bara vex og vex
En þessi snilldarhugmynd hefði nú hins vegar mátt koma mun fyrr:
http://images39.fotki.com/v1288/photos/8/845056/6595899/002-vi.jpg

í gær flutti ég loksins inní fínu flottu lúxusíbúðina mína. Grunar að Rafa minn sé nú pínkuponsu feginn. Greyið hefur ekkert getað tælt stelpur með sér heim því ég var alltaf þarna fyrir í herberginu hans ;)

Prinsessuherbergið:
http://images38.fotki.com/v1297/photos/8/845056/6649994/002-vi.jpg

Liliana, Celeste og ég að hafa það kósý í lazyboy-sófanum:
http://images41.fotki.com/v1308/photos/8/845056/6649994/008-vi.jpg

Eintóm gleði og hamingja,
Flytju-Bergmann


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 13:25:49 / valla

SpanGólinn

Well ó well... Kominn tími á örlitla skýrslu ef til vill. Alveg helvítis hellingur að gera sem spænsk gengilbeina og þá er nú líka eins gott að maður fái heilar 4,30 € á tímann!!! Annars myndi þetta náttla ekki borga sig!

Flest hafið þið eflaust heyrt að þjórféð sé ætlað þeim sem þjónar til borðs... neihh, á Duplex ríkir aftur á móti sannkallaður tips-kommúnismi. Bíð þess vegna spennt eftir mánaðamótunum þegar góssinu verður skipt jafnt á milli starfsmanna...spennt en bitur líka því í síðustu viku landaði ég til að mynda þessu myndarlega 14-evru-tipsi sem hefði farið beint í nike-vasann minn ef heimurinn væri sanngjarnari :s

Annars hafa örlögin verið það vinsamleg að veita mér í té alveg stórmagnaðan nágranna. Hugur minn leitar fyrst til sumarsins 2003 þegar við Bjórunn mín bjuggum saman í Málaga og bjuggum með einkar ástfangið par hinum megin við vegginn. Það er nefnilega þannig að hér í Spánarlandinu mínu góða virðast flestir veggir vera úr pappa sem gerir blokkarlífið stórspennandi. Allavega... þessi ágæti maður veit fátt skemmtilegra en að syngja á hinum ýmsum tímum sólarhringsins. Og ef manna dettur ekkert lag í hug finnst honum tilvalið að góla bara hin ýmsu hljóð... sum hljóð sem ég hélt að mannfólki væri ekki eiginlegt að framkalla! Hún mamma kom með þá kenningu um daginn að vesalings SpanGólinn væri með tourette-syndrómið. Alveg hugsanlegt, en alveg er ég viss um það að ég eigi eftir að þróa með mér einhvers konar taugarveiklunar-syndróm ef ég held áfram að hrökkva upp á næturnar.

Rafa minn loksins kominn heim aftur eftir 3 vikna reisu og allir kátir í höllinni :d... ekki síst vegna þess að hans fyrsta verk var að laga gaskútinn. Erum nefnilega búin að þola ískaldar sturtur í rúma viku og höfum ekkert getað eldað heldur...jah, þetta seinna breytti mínu daglega lífi svo sem lítið ;)

Zzzneisafullur myndapakki hér: http://public.fotki.com/vbg/mi-sevilla-espaa-2008/

http://images39.fotki.com/v1282/photos/8/845056/6595899/4-vi.jpg
Closing time @ Duplex

Gengilbeinu-frídagur í dag. Ætla að skanna kínverjabúðirnar og finna mér barnasundlaug til að fara með uppá þak. Aaaaf hverju í aaaannd**** var mér ekki löngu búið að detta það í hug??!!

Hasta la próxima hijos,
Sólbaðs-Bergmann


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 03:19:09 / valla

1sti í gengilbeinu

Bueeeeeno... byrjaði loksins í dag að vinna eftir geysimikla pappírsflækju og endalaust vesen. Aaaaaf hverju getum við ekki bara gengið snöggvast í Evrópusambandið? Ha?
Núna er ég samt orðin meiri Spánverji en nokkru sinni fyrr því ég er komin með spænska kennitölu ;)

Ég þjóna til borðs á tapas-veitingastaðnum Duplex og er fagmennskan holdi og svörtum bol klædd eins og sjá má:
http://images40.fotki.com/v1251/photos/8/845056/6531579/2-vi.jpg

Og svona ferðast ég á milli staða:
http://images38.fotki.com/v1274/photos/8/845056/6531579/001-vi.jpg
Því miður eru samt allar líkur á því að þetta göfuga farartæki á millímetradekkjunum sé stolið þar sem ég keypti það notað í búð sem selur ýmsa aðra notaða (stolna) hluti eins og bílageislaspilara, gsm-síma, sjónvörp, hárblásara, úr, bora og ég-veit-ekki-hvað.
Vonum bara að ég hitti ekki vesalings fyrrum eigandann á förnum vegi.

Svo er það ekki óntýtt að gamli góði Fran (sem ég hafði ekki séð í rúmt ár) vinnur á bar rétt hjá mér:
http://images108.fotki.com/v1298/photos/8/845056/6531579/003-vi.jpg

Annar í gengilbeinu á morgun og klukkan að skríða í hálf 6...
Buenas noches og besos í bili,
Duplex-Bergmann

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Heimsóknir
Í dag:  38  Alls: 123332
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 398 dögum
Sevillalífið getur hafist á ný