...finnst mér tilvalið gera lauslega grein fyrir hvað við Sevilla mín höfum verið að bralla undanfarið. En þar sem ég þarf að spanna ca. 2 mánuði þá förum við bara punktaleiðina að þessu:
· Þessi prófa- og verkefnatörn er hálfnuð, sem þýðir að ég er búin með 2 áfanga og á 2 eftir. Er nokkuð kát með það þó ég hafi svo sem ekkert hoppað hæð mína eftir prófið í gær. Allavega, þá ákvað ég eftir taugaveiklunarköst síðustu annar að hafa þessa aðeins léttari fyrir mig sem og þá sem þurfa að umgangast mig.· En á hinn bóginn...þá er muuun erfiðara núna að halda sig við efnið og loka sig inni á bókasafni þar sem sú gula droppar aldrei við. Sérstaklega þegar hitamælarnir eru farnir að koma með tölur eins og 38.· Þá kýs ég næstum því að endurtaka prófalesturinn í febrúar... í dúnúplunni minni með heitt te í æð vitandi það að ef ég lægi við sundlaugarbakka á vindsænginni minni myndi ég hvort sem er lítið annað uppskera en lungnabólgu.· MONT 1º: “Við” komumst inn í Meistaradeildina fyrir næsta tímabil með því að enda í 3ª sæti í spænsku!!! Haha…og til að bæta sætu ofan á sætt þá féll Betis niður í 2ª deild.· MONT 2º: Var að fá það staðfest að ég náði málfræðikenninga- og setningagreiningaráfanganum ógurlega, “erfiðasta áfanga ferilsins” (svo ég vitni í kennara og aðra nemendur)…Eins og að losna við 15 kg bakpoka eftir að vera búin að bera hann í 8 mánuði!! Þá get ég nú loksins verið spök og einbeitt mér að því að fá andarteppu út af einhverju öðru.· MONT 3º: Komst í gegnum síu inn á kennaranámskeið “L2” hjá Instituto Cervantes, sem gefur mér réttindi til þess að starfa sem spænskukennari í málaskólum hér um víðan völl á Spáni
… Kostar reyndar andvirði nýra (og ég sem er bara með 1stk)…en “JODER” hvað það á eftir að líta vel út á CV-inu mínu!· Er í fýlu út í dóttur mína hana Miu sem pissaði fyrir utan herbergisdyrnar mínar! Stelpurnar segja að hún sé að biðja um athygli mína því ég sé aldrei heima…en ég útskýrði fyrir henni á vel valdri íslensku að hún bæri ekki Bergmann-nafnið til að haga sér síðan svona

· Er orðin forfallin kaffikerling. Náði þarna að gera sjálfa mig steinhissa þar sem ég þoldi aldrei kaffi...ekki einu sinni ef það var sett of mikið af því í kremið á skúffukökuna. En núna er kaffi allt í einu með því fyrsta sem ég hugsa um þegar ég vakna á morgnana. Þýðir það að ég sé að fullorðnast?· Fékk tennisboltakúlu-enni þegar ég steyptist á hausinn á miðri hjólabraut “Sevici”. Reyndar engan veginn (eða allavega að mjööög litlum hluta) mér að kenna því ég var klesst niður af strákbjána sem gleymdi að horfa á sama tíma og ég reyndi að forðast dúfuskammir sem neituðu að færa sig.· Tennisbolta-ennið breyttist síðan í þrælfínt pandabjörns-glóðarauga sem ég bar sem skraut á meðan ég hélt 2 fyrirlestra í síðustu viku.· Var óþægilega viðstödd rifrildi og sambandsslit um daginn. Væri kannski ekki ýkja mikið í frásögur færandi hefði það ekki verið akkúrat í ræktinni á meðan ég var að teygja... Æjj, elska hvað Spánverjarnir mínir geta verið blóðheitir og dramatískir.· Er æsispennt fyrir sumrinu 2009! Þetta verður mikið gengilbeinu-sumar, en í bland við vinnu og strandarferðir ætla ég mér að gerast málvísindamaður mikill, leggja Andalúsíu undir fót og tjékka á hvaða innbyrðis þróun er að eiga sér stað í þessari fallegu fallegu mállýsku sem andalúsískan er.· Eini mínusinn sem ég sé við þetta allt saman er að ég sé ykkur elsku Kreppulandsfólkið mitt ekki fyrr en um það leyti sem við skreytum öll jólatréð 
Elsku Liljan mín, þetta var að miklu leyti fyrir þig :*
Bueno, bueno…nú bíður mín Biblíu-þykk mállýskufræðibók fyrir háttinn.
Hafið það “genial”,
¿Læru?-Bergmann